Nú geta allir sem vilja sett saman eigin vef og hýst endurgjaldslaust án þess að þekkja hið minnsta til HTML eða nota sérhæfðan hugbúnað til vefsíðugerðar. Allt í boði frumkvöðlanna í Google sem nýlega opinberuðu vefinn Google Pagecreator einmitt í þessum tilgangi.
Google pagecreator þjónustan er einstaklega einföld í notkun og kjörin vettvangur fyrir kennara og nemendur sem hafa áhuga á vefsmíðum og auðvitað alla þá sem vilja birta hvers kyns efni á Netinu. Vefsmíði með Pagecreator fer öll fram innan netvafrans og geta notendur mótað útlit vefsins með ótal sniðmátum.
Hver einstaka notandi Pagecreator fær úthlutað eigin vefslóð á sniðinu http://notendanafn.googlepages.com
og til þess að birta eða uppfæra vef sem er í smíðum þarf aðeins að
smella á einn hnapp. Pagecreator þjónustan er opin öllum skráðum Google
notendum, en hægt er að skrá sig hér. Skráning á Google veitir aðgang að fjölda ókeypis þjónusta í boði fyrirtækisins, s.s. Google analytics sem ég hef áður fjallað um. Notendur Gmail tölvupóstsins
hafa nú þegar aðgang að Pagecreator ásamt öðrum Google þjónustum.
Aðgangur að Gmail er takmarkaður með svokölluðum boðsmiðum sem
núverandi Gmail notendur geta sent vinum, kunningjum eða öðrum sem þeir
kjósa að bjóða aðgang að þjónustunni.
Hér má sjá einfaldan vef sem ég setti saman með aðstoð Google Pagecreator
Technorati Tags: Google, pagecreator, vefsmíði, vefsíðugerð